Pásan þessi entist ekki lengi, ekki frekar en aðrar pásur sem ég
tek mér! Hehe, sagði við Svölu í gær að Toffy Crispy-ið sem ég
borðaði þá yrði síðasta nammið mitt í viku! Uhm, stóðst hana alveg
þangað til ég var búin í skólanum í dag!

Fann hlaup oní
skúffu og ég varð bara að borða það, annars myndi það skemmast
sjáðu til!

Glötuð gella maður!
Annars fór ég heim á Sigló um helgina og MMM hvað það var gott! Ég
sjaldan komið jafn afslöppuð til baka og á sunnudaginn.. Við mamma
vorum bara að dúlla okkur, reyndar var ég heavy dugleg á
föstudaginn og lærði helling í STÆ, svo kláraði ég líka eitthvað
ensku verkefni, það tók mig samt alla helgina hehe .. En á milli
þess sem ég var að læra þá vorum ég og mamma bara að dúllast, þreif
reyndar BLÁU ELDINGUNA (ánægður Guðni?

) með pabba og sjæse hún
er hrein maður! .. að utan ehehe
En annað mál á dagskrá ..
Helgin var ekki bara góð, heldur gerðist sorgaratburður á
laugardagsmorguninn.. Sesar Þór lést í bílslysi, langt um aldur
fram, aðeins 19 ára gamall og þó að ég þekkti hann ekki neitt,
vissi bara hver hann var, þá sló þetta mig mjög fast á laugardaginn
og ég var í sjokki eiginlega allan daginn. Ég þekki marga sem
þekktu hann vel og það er mjög óþægilegt að sjá að þeim líður illa.
Ég votta fjölskyldu Sesars, vinum hans og öllum sem þekktu hann
alla samúð mína og Guð veiti ykkur styrk á þessum erfiða tíma.
Ég ætla ekkert að fara mörgum orðum um þetta ..
Núna er ég að horfa á ferðatöskurnar á gólfinu og hugsa að ég nenni
svo engan veginn að taka upp úr þeim! Það er það leiðinlegasta sem
ég geri, einhver sem bíður sig fram? Ég vildi að fötin gætu bara
farið sjálf inn í fataskápinn, ójá, það væri geggjað maður! Hehe ..
Damn, mig langar í brynjuís!
Spurning hvað maður gerir í sumar, verður hérna á Ak eða heima á
Sigló? Get engan veginn ákveðið mig, fer reyndar eftir því hvernig
vinnu ég fæ heima en já .. ef ég fæ sæmilega vinnu þar, hvað geri
ég þá? Úff ..
Jæja, ég er farin að sparka í ferðatöskurnar og athuga hvort það sé
eikkað líf í þeim!